Herjólfur stefnir á hefðbundna sjö ferða áætlun frá mánudegi
Herjólfur á leið í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Herjólfur ohf. hefur birt jákvæðar fréttir fyrir farþega og tilkynnt að frá og með mánudeginum 18. maí verði stefnt að siglingum samkvæmt hefðbundinni sjö ferða áætlun til Landeyjahafnar – þar til annað verður tilkynnt.

Samkvæmt tilkynningunni verður brottför frá Vestmannaeyjum klukkan 07:00, 09:30, 12:00, 14:30, 17:00, 19:30 og 22:00. Frá Landeyjahöfn verða brottfarir klukkan 08:15, 10:45, 13:15, 15:45, 18:15, 20:45 og 23:15.

Um er að ræða hefðbundna áætlun Herjólfs með sjö ferðum á dag, sem hefur ekki verið hægt að halda úti að undanförnu vegna aðstæðna í Landeyjahöfn og annarra rekstraráskorana. Í tilkynningu félagsins kemur fram að þessi áætlun gildi þar til annað verður tilkynnt.

Nýjustu fréttir

Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Myndband: Athafnasvæðin austur á Heimaey úr lofti
Jóhann Ingi tekur sæti Sæunnar til áramóta
Vaxandi lestur og fleiri áskrifendur hjá Eyjafréttum
Tölum um heilabilun – fræðsla í Vestmannaeyjum
Starfshópur mótar nýja ferjuáætlun
Haustið farið af stað hjá Fimleikafélaginu Rán
Ægisgata 2 sett aftur á sölu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.