Því miður versnuðu aðstæður í Landeyjahöfn. Herjólfur siglir því til Þorlákshafnar. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 (Áður ferð kl. 17:00). Brottför frá Þorlákshöfn kl. 19:45 (Áður ferð kl. 20:45). Þetta segir í nýútgefinni tilkynningu frá Herjólfi ohf. en áður hafði verið gefið út að siglt yrði til Landeyjahafnar síðdegis.
Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Tilkynning verður gefin út kl. 06:00 í fyrramálið vegna siglinga á sunnudag.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst