Á föstudaginn voru opnuð tilboð í rekstur leikskólans Sóla en þrjú tilboð bárust í reksturinn. Óstofnað hlutafélag í eigu Elfu Ágústu Magnúsdóttur og Lóu Skarphéðinsdóttur bauð dvalargildi fyrir 14.440 krónur á mánuði. Hjallastefnan ehf. bauð dvalargildi fyrir 11.905 krónur á mánuði og Skólar ehf. Aðaltilboð bauð dvalargildi fyrir 12.449 krónur á mánuði.