Líf og fjör var í Höllinni í Vestmannaeyjum í dag þegar Arsenal-klúbburinn í Eyjum stóð fyrir fjölskyldudegi fyrir stuðningsmenn og aðra gesti.
Yngri kynslóðin lét sig ekki vanta og nutu börnin sín vel í hoppuköstulum á meðan boðið var upp á pylsur og drykki fyrir alla sem mættu. Fjölmargir lögðu leið sína í Höllina til að taka þátt í skemmtuninni og skapaðist sannkölluð fjölskyldustemning.
Viðburðurinn er jafnframt upphitun fyrir stórleik dagsins þegar ensku meistararnir Arsenal mæta Evrópumeisturum PSG í einum af stærstu leikjum ársins. Klukkan 15 opnar húsið fyrir stórleikinn og þar eru í boði sérstök tilboð á drykkjum auk þess sem hamborgarar eru til sölu fyrir gesti. Leikurinn hefst svo klukkan 16.00.
Eyjafréttir birtir hér myndasyrpu frá fjölskyldudeginum þar sem sjá má stemninguna sem ríkti í Höllinni.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.