
Hrekkjavakan setti svip sinn á Bókasafn Vestmannaeyja í gær, laugardag, þegar krökkum bauðst að föndra hrekkjavökuföndur, lita og skreyta bókamerki. Safnið hefur verið skreytt hátt og lágt í tilefni hrekkjavökunnar.
Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, leit við með myndavélina og myndaði mannlífið. Myndir hans má sjá hér að neðan.
Hrekkjavökufjörið heldur áfram laugardaginn 31. október. Þá verður opið frá klukkan 12:00 til 15:00 og sögustund í myrkri klukkan 13:00. Krökkum er boðið að taka með sér vasaljós.






