Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið

Fjármál Vestmannaeyjabæjar, breytingar á Loftbrú og uppbygging við Hástein voru meðal viðfangsefna vikunnar á Eyjafréttum. Eyjakonur fögnuðu bronsi í Bestu deildinni og bleikur október setti svip á mannlífið. Í helgarlesningunni var sjónum beint að góðu lundasumri og frumkvæði Eyjamanna við upphaf Landhelgisgæslunnar. Lágar tekjur en sterk afkoma Fjármál Vestmannaeyjabæjar voru til umfjöllunar í samanburði Arons […]

„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“

Sjö ferðir Herjólfs falla niður síðdegis þriðjudaginn 27. október og fram eftir degi miðvikudaginn 28. október vegna viðhalds. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir verkefnin nauðsynleg til að draga úr hættu á óvæntum bilunum og frekari röskun á siglingum. Eins og Eyjafréttir greindu frá fyrr í mánuðinum eru fyrirhugaðir viðhaldsdagar hjá Herjólfi 27. og 28. október. Af því […]

Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga

Lundavarp í Vestmannaeyjum gekk einstaklega vel í sumar og pysjurnar voru þungar og í góðum holdum. Erpur Snær Hansen, fuglafræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands, segir stofninn vera að rétta úr kútnum eftir langvarandi niðursveiflu. Þrátt fyrir góðan árangur séu lundaveiðar enn ósjálfbærar. Lundasumarið byrjaði með óvenjulegum hætti á sunnan- og vestanverðu landinu. Í júní höfðu […]

Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær

Kvennalið ÍBV hélt lokahóf í gærkvöldi þar sem gert var upp glæsilegt knattspyrnusumar. Eyjakonur höfðu sannarlega tilefni til að fagna eftir frábært tímabil þar sem liðið hafnaði í þriðja sæti Bestu deildar kvenna og komst í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Með árangrinum jafnaði liðið besta árangur nýliða í deildinni. Lokahófið fór fram á Háaloftinu. Óskar Jósúa sá […]

Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa

Hrekkjavakan setti svip sinn á Bókasafn Vestmannaeyja í gær, laugardag, þegar krökkum bauðst að föndra hrekkjavökuföndur, lita og skreyta bókamerki. Safnið hefur verið skreytt hátt og lágt í tilefni hrekkjavökunnar. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, leit við með myndavélina og myndaði mannlífið. Myndir hans má sjá hér að neðan. Hrekkjavökufjörið heldur áfram laugardaginn 31. október. […]

Nóg að gera í saltfisksölunni

Nóg var að gera þegar handknattleiksdeild ÍBV stóð fyrir saltfisksölu í kró á Skipasandi í gær, laugardag. Þar var boðið upp á ekta saltfisk upp á gamla mátann. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, leit við og myndaði mannlífið í kringum söluna. Myndir hans má sjá hér að neðan. (meira…)

Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft

Frumkvæði Eyjamanna og kaup Björgunarfélags Vestmannaeyja á Þór voru í sviðsljósinu þegar aldarafmæli Landhelgisgæslu Íslands var fagnað í Hörpu 26. september. Bæði Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Georg Lárusson, forstjóri Gæslunnar, minntu á framsýni fólksins sem lagði grunn að starfseminni. Upphaflega átti að fagna tímamótunum í Vestmannaeyjum 1. júlí. Hátíðarhöldunum var hins vegar frestað vegna […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.