
Nóg var að gera þegar handknattleiksdeild ÍBV stóð fyrir saltfisksölu í kró á Skipasandi í gær, laugardag. Þar var boðið upp á ekta saltfisk upp á gamla mátann.
Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, leit við og myndaði mannlífið í kringum söluna. Myndir hans má sjá hér að neðan.


