„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir fyrirbyggjandi viðhald draga úr hættu á óvæntum bilunum og röskun á siglingum. Mynd: Eyjafréttir/Svava Kristín
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Sjö ferðir Herjólfs falla niður síðdegis þriðjudaginn 27. október og fram eftir degi miðvikudaginn 28. október vegna viðhalds. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir verkefnin nauðsynleg til að draga úr hættu á óvæntum bilunum og frekari röskun á siglingum.

Eins og Eyjafréttir greindu frá fyrr í mánuðinum eru fyrirhugaðir viðhaldsdagar hjá Herjólfi 27. og 28. október. Af því tilefni ræddu Eyjafréttir við Ólaf Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóra Herjólfs ohf., um ástæður viðhaldsins og áhrif þess á siglingar.

Verkefni sem geta ekki beðið næstu slipptöku

Að sögn Ólafs er nú rúmt ár liðið frá því að Herjólfur fór síðast í slipp og gekk sú slipptaka mjög vel. Næsta slipptaka er áætluð haustið 2028.

„Skipið er auðvitað að eldast og álagið á skipið og allan búnað þess er gríðarlega mikið. Vélstjórar okkar sinna viðhaldi allan ársins hring, en það eru einfaldlega ákveðin verkefni sem ekki er hægt að sinna á meðan skipið er í siglingum. Þetta eru verkefni sem geta ekki beðið fram að næstu slipptöku og því er nauðsynlegt að taka þennan tíma í viðhaldið,“ segir Ólafur.

Reynt að valda sem minnstu raski

En hvers vegna urðu þessir tilteknu dagar fyrir valinu?

„Við vitum auðvitað að hver einasta ferð sem fellur niður veldur einhverjum óþægindum fyrir farþega okkar. Þess vegna lögðum við mikla áherslu á að velja daga þar sem raskið yrði sem minnst. Við biðum þar til vetrarfríi skólanna væri lokið og þriðjudagar og miðvikudagar eru alla jafna þeir dagar vikunnar þegar fæstir eru á ferðinni.“

Ólafur segir fyrirbyggjandi viðhald draga úr hættu á óvæntum stöðvunum. „Það er auðvitað aldrei heppilegt að þurfa að fella niður ferðir, en það er mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti en að skipið stöðvist fyrirvaralaust vegna þess að nauðsynlegu viðhaldi hefur ekki verið sinnt.“

Hvers vegna ekki að nýta daga þegar ófært er?

Hvers vegna er ekki hægt að nýta daga þegar ferðir falla niður vegna veðurs eða sjólags til að sinna slíku viðhaldi?

Ólafur segir skýringuna fyrst og fremst liggja í þeim undirbúningi sem viðhaldið krefst.

„Það liggur mikill undirbúningur að baki svona viðhaldsdögum. Við þurfum meðal annars að fá sérfræðinga frá Reykjavík til að vinna að ákveðnum viðgerðum og því er ekki hægt að ákveða slíkar framkvæmdir með mjög skömmum fyrirvara. Það er hins vegar rétt að taka fram að sá tími sem gefst þegar ferðir falla niður vegna veðurs eða sjólags er vel nýttur um borð í skipinu.“

Leki í gír, pústleki og viðgerð á stefnisbúnaði

Verkefnin sem ráðist verður í eru fjölbreytt, að sögn Ólafs.

„Það þarf meðal annars að gera við leka í gír, lagfæra tjakk sem opnar stefni skipsins og gera við pústleka, auk fjölmargra annarra verkefna. Þetta eru umfangsmikil verk og mat okkar er að við þurfum þennan tíma til að geta lokið þeim með góðum hætti.“

Aðspurður hvort nauðsynlegt sé að fella niður svo margar ferðir segir Ólafur að tíminn hafi verið áætlaður út frá umfangi verkefnanna.

„Það verður að sjálfsögðu unnið eins hratt og vel og mögulegt er. Ef verkin ganga betur en áætlað er og við getum hafið siglingar fyrr, þá gerum við það.“

Ekki hægt að útiloka fleiri viðhaldsdaga

Ólafur segir ekki hægt að útiloka að grípa þurfi til sambærilegra aðgerða síðar.

„Við getum auðvitað ekki útilokað að það þurfi fleiri svona viðhaldsdaga í framtíðinni. Skipið eldist, búnaður slitnar og notkunin er mikil. Það skiptir hins vegar máli að sinna viðhaldinu jafnóðum og reyna þannig að koma í veg fyrir óvæntar bilanir.“

„Við viljum auðvitað alltaf sigla sem flestar ferðir“

Að lokum báru Eyjafréttir upp spurningu frá lesanda um hvers vegna Herjólfur siglir stundum til Landeyjahafnar og bíður þar þegar aðstæður eru ótryggar, í stað þess að sigla áfram samkvæmt hefðbundinni áætlun.

„Þetta er mjög góð spurning,“ segir Ólafur.

„Markmið okkar er auðvitað alltaf að sigla sjö ferðir á dag. Hins vegar geta aðstæður við Landeyjahöfn verið þannig að þær breytist mjög hratt og jafnvel verði ófært með stuttum fyrirvara. Við slíkar aðstæður viljum við að farþegar okkar geti að minnsta kosti treyst á þær ferðir sem við teljum öruggt að hægt sé að sigla.“

Ólafur segir stundum skynsamlegra að bíða í Landeyjahöfn, þar sem yfirleitt sé hægt að sigla út úr höfninni þótt aðstæður til að sigla inn í hana versni. Hann nefnir dæmi um það:

„Áður en við fórum að gera þetta með þessum hætti kom það iðulega fyrir að við sigldum frá Eyjum klukkan sjö og til baka klukkan 8.15, en þegar kom að ferðinni klukkan 9.30 var orðið ófært. Þá gat staðan verið sú að ekki væri hægt að sigla fleiri ferðir til Landeyjahafnar þann daginn.

Með þessu fyrirkomulagi getum við betur tryggt að fólk geti treyst á öruggu ferðirnar okkar, jafnvel þótt aðstæður við Landeyjahöfn versni yfir daginn. Við viljum auðvitað alltaf sigla sem flestar ferðir, en það er líka mikilvægt að farþegar geti skipulagt ferðir sínar með sem mestri vissu,“ segir Ólafur að lokum.

Nýjustu fréttir

„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.