HS Vélaverk ehf. fagnar tíu ára afmæli
Næg stór og skemmtileg verkefni í bígerð
7. nóvember, 2025
Eigendur og starfsmenn. F.v. Hermann, Hafþór, Sindri, Einar, Gylfi og Birkir

HS Vélaverk ehf. vélaverktakar er í eigu Hafþórs Snorrasonar og Hermanns Sigurgeirssonar. Fyrirtækið fagnaði tíu ára afmæli þann fyrsta október sl.. Umfangið hefur aukist á þessum tíu árum og hefur verið nóg að gera. Starfsmenn eru sjö og  hafa þeir yfir að ráða 21 tæki af öllum stærðum. Þeir hafa komið að nokkrum stærstu verkefnum í Vestmannaeyjum á síðustu árum og nokkur spennandi eru framundan. 

Blaðamaður leit við í höfuðstöðvum fyrirtækisins við Garðaveg þar sem allir voru mættir í kaffi. Allir í vinnugalla, eigendur og starfsmenn. Bera með sér að kalla ekki allt ömmu sína  og Guðjón Borgar fyrrum gröfukarl mættur til að taka þátt í spjallinu. 

Árið 2005 hóf Íslenska gámafélagið starfsemi í Vestmannaeyjum. Sinnti sorphirðu og keypti um leið Gröfuþjónustu Einars og Guðjóns og Gámaþjónustuna og sameinuðust Íslenska gámafélaginu. Hermann fylgdi með Gröfuþjónustunni og Hafþór byrjaði 2006. Þeir bjuggu því að mikilli reynslu þegar þeir ákveða að kaupa gröfudeildina út úr Íslenska gámafélaginu. Félagið ákvað að leggja af gröfuþjónustuna sem Hafþór og Hermann keyptu. 

„Við stofnuðum okkar fyrirtæki, HS Vélaverk þann 1. október 2015 þegar þeir ákváðu að hætta í gröfubransanum. Bjóða okkur að kaupa tækin sem við gerðum vitandi að framundan væru stór verkefni,“ segir Hermann og í kaupunum fylgdu átta tæki. 

Þeir félagar vissu því að hverju þeir gengu þegar þeir hófu rekstur. „Við vorum tveir fyrsta hálfa mánuðinn og unnum langt fram á kvöld alla daga. Sáum að það gekk ekki og fljótlega réðum við einn og eftir mánuð vorum við orðnir fjórir,“ segir Hafþór og reksturinn hefur vaxið og dafnað. „Í dag erum við sjö sem vinnum hérna, með 21 tæki og af því eru fjórir vörubílar. Þetta eru hjólagröfur, beltagröfur, traktorsgrafa og fjórar minni vélar. Vélar af öllum gerðum nema jarðýtur.“ 

Af nægu að taka

Þeir hafa komið að mörgum verkefnum á þessum tíu árum og það stærsta segja þeir vera jarðvinnu fyrir Seiðaeldisstöð Laxeyjar við Friðarhöfn. „Við sáum líka um gröft í kringum allt lagnaverk fyrir Sjóvarmaveituna sem var mikið og flókið verk. Laxey er mikill fengur fyrir allt atvinnulíf í Vestmannaeyjum og við njótum þess. Er Laxey okkar stærsti viðskiptavinur í dag. Við erum líka í gatnagerð á Hvítingaveginum og vinnum mikið fyrir HS Veitur og HS Orku. Sjáum um flest alla jarðvinnu fyrir HS Veitur í Vestmannaeyjum og Mílu,“ segir Hermann. 

Ekki má gleyma einstaklingum en þjónusta við þá er mikilvægur hlekkur í starfseminni. „Það eru húsgrunnar og annað sem tengist byggingaframkvæmdum. Gott dæmi um það eru fjölbýlishúsin tvö við Sólhlíð sem Sigurjón Ingvars er að byggja. Það var mikið verk að grafa grunninn því stutt var niður á fast. Þarna undir er bílakjallari og þeir voru margir rúmmetrarnir af grjóti sem þar komu upp. Það var flutt austur á Nýjahraun og verður nýtt í framtíðinni.  Næst er það grunnur undir aðra þverblokk í Áshamri sem kemur framan við þá gömlu, norðan megin. Þar verður bílakjallari sem er orðin krafa úti á landi,“ segir Hafþór. 

Af þessari upptalningu má sjá að næg eru verkefnin, svo eru stór og skemmtileg verk í bígerð,“ segir Hermann. 

Þeir segja ekki mikið um útboð í jarðvinnu í Vestmannaeyjum. „Það er helst hjá Vestmannaeyjabæ sem verður að bjóða út verk lögum samkvæmt. Líka hafa HS Veitur boðið út stærri verkefni,“ segir Hafþór. 

Hafa áunnið sér traust í gegnum árin 

HS Vélaverk hefur áunnið sér traust í gegnum árin og þeir hafa  í þrjú ár verið ofarlega á lista Credit Info yfir framúrskarandi fyrirtæki. „Við skoruðum mjög hátt og erum stoltir af viðurkenningunni og viðurkenningin er mjög mikilvæg fyrir okkur. Hún hefur ekki mikið að segja í Vestmanneyjum þar sem allir þekkja okkur og vita fyrir hvað við stöndum. Þetta gæti komið okkur til góða ef við þyrftum að leita að verkefnum uppi á landi. Sem betur fer er það ekki í augsýn. 

Árið 2024 stofnuðum þeir ásamt DVG steypustöðina Steypey og eru búnir að vinna mikið af efni fyrir þá. Hjá Steypey eru tveir starfsmenn. Svo erum þeir að stofna Efnisvinnslu Vestmannaeyja ásamt þremur öðrum fyrirtækjum til að framleiða og selja jarðefni. 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
viðburðir
DSC 6945
21. desember 2025
20:30
Jólahvísl í Hvítasunnukirkjunni
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.