HSU með sólarhringsviðbúnað yfir Þjóðhátíð
Hjúkrunarfræðingar HSU verða með viðveru í sjúkraskýlinu í Herjólfsdal frá klukkan 20 á kvöldin til klukkan 8 að morgni. Ljósmyndir/aðsendar

Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum verður með öflugan viðbúnað allan sólarhringinn yfir Þjóðhátíðarhelgina.

Bráðamóttaka heilsugæslunnar verður opin allan sólarhringinn og verður starfsfólk HSU vel merkt. Þá verða sjúkraflutningar með aukinn viðbúnað vegna hátíðarinnar.

Hjúkrunarfræðingar verða jafnframt með viðveru í sjúkraskýlinu í Herjólfsdal frá klukkan 20 á kvöldin til klukkan 8 að morgni.

„Njótið Þjóðhátíðarinnar, passið vel upp á ykkur og hvert annað – við sjáum um hitt,“ segir í tilkynningu HSU.

Sjúkraskýlið í Dalnum.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.