Huga þarf vel að okkar verðmætustu dýrgripum
Undirrituð hefur tileinkað ævistarf sitt börnum og leikskólastarfi. Margt hefur breyst á þeim árum sem ég hef kennt í leikskóla og það er langt í frá hægt að gera því skil hér í stuttri grein. Börn í dag hefja sitt opinbera líf í uppeldissamfélaginu í kringum eins árs aldur hjá dagforeldrum og í kringum 18 mánaða aldurinn fara þau yfir í leikskólann. �?ar er grunnurinn að menntun lagður, grunnurinn að lestrarnámi þeirra og stærðfræðiþekkingu. �?essi ár eru hin fyrstu þar sem lítil börn eru ekki lengur eingöngu alin upp innan fjölskyldu sinnar heldur af ókunnugum sem vinna við uppeldi barna viku eftir viku, ár eftir ár og alltaf með ný og ný börn í fanginu.
Mikilvægi þess að til starfa í leikskólunum veljist hæfileikaríkir einstaklingar sem hafa til að bera þolinmæði, þekkingu og getu, verður seint fullmetið. Í dag getum við ekki mannað leikskólana okkar eingögu með menntuðum leikskólakennurum, en í samfélagi okkar eru fleiri stéttir sem hafa sérhæft sig í kennslu leikskólabarna. Sterkur leikskóli verður til með sterkum einstaklingum sem sinna og kenna yngstu börnunum okkar. �?að er hlutverk þeirra sem stjórna að valdefla fólkið sitt þannig að það geti sem best sinnt uppeldi og kennslu í leikskólunum.
�?ví segi ég virðum ólíka fagmenntun innan uppeldisgeirans og borgum laun eftir því í leikskólanum.
Emma Vídó Sigurgeirsdóttir 13. sæti H-lista

Nýjustu fréttir

Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Erlingur stýrði Minden til sigurs í sínum fyrsta leik
Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
ÍBV tapaði stórt gegn FH í Kaplakrika
Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.