Hvað er að frétta af loðnunni?
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri uppsjávarlífríkis hjá Hafrannsóknarstofnum var með erindi í Þekkingarsetrinu í janúar um loðnu.

Þekkingarsetur Vestmannaeyja stendur fyrir mánaðarlegri fundarröð um sjávarútveg þar sem rúmlega 100 aðilum sem tengjast sjávarútvegi í Eyjum er boðin þátttaka. Á þriðjudaginn hélt Þorsteinn Sigurðsson, sviðstjóri uppsjávarlífríkis hjá Hafrannsóknarstofnun erindi sem bar yfirskriftina: Hvað er að frétta af loðnunni? Um 60 manns komu á erindið  frá hinum ýmsu sviðum sjávarútgsins.

Þær umhverfisbreytingar sem orðið hafa á undanförnum áratugum hafa leitt til mikilla breytinga í útbreiðslu fiskistofna og er loðnan engin undantekning þar á.  Í erindinu er þessum breytingum lýst og farið yfir það hvaða áhrif breytingarnar hafa haft á útbreiðslu loðnunnar. Farið er yfir stöðu þekkingar og hvernig reynt hefur verið að bregðast við þeim með aukinni vöktun og nýjum rannsóknum. Jafnframt er farið yfir stöðu nýjustu mælinga á loðnustofninum og spáð í horfurnar.

Eins og staðan er núna er ekki hægt að gefa út kvóta og ákveðið var að halda leitinni að loðnunni áfram. Polar Amaroq fór af stað í leit á þriðjudaginn og gert er ráð fyrir að hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson haldi síðan til leitar á föstudaginn. „Byrjað verður á að skoða útjaðra leitarsvæðisins en megintilgangurinn er að kanna hvort eitthvað hefur bæst í þau rúmlega tvö hundruð þúsund tonn sem mældust á dögunum. Það er ekki búið að ákveða hve lengi þessi skip verða við leit núna en það mun meðal annars fara eftir því hvort eitthvað hefur breyst frá fyrri leit,“ sagði Þorsteinn

Hægt er að horfa á erindið hérna.

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.