Nú hefur ekki verið siglt í Landeyjahöfn síðan 24. nóvember 2012. Í dag er 14. febrúar 2013. Heyrst hefur að ákveðið sé að smíða nýja ferju, sem á að henta betur í Landeyjahöfn. Sú ferja á að vera 60 metra löng og fimmtán metra breið, og rista 2,8 metra. Áætlað er að hún taki 60 bíla. Ekki er gert ráð fyrir kojum. Það sjá allir sem vilja sjá að svona skip hentar ekki til siglinga til Þorlákshafnar. Hvað á að gera í því?