Hver er munurinn á framboðunum í samgöngumálum
Nú þegar tæp vika er til kosninga er rétt að skoða hvað E-listinn og D-listinn hafa áorkað í samgöngumálum, annað en að vera sammála í öllu er varðar samgöngur á sjó.
Bæði framboðin virðast hafa gleymt þeim forsendum sem þau tóku undir í minnisblaði með samantekt um stöðu mála í bæjarráði 4.12.2014 vegna tilkomu nýju ferjunnar: ,,Viðmið bæjarfulltrúa hafa verið að ekki sé ásættanlegt að fjöldi þeirra daga sem ferðir í Landeyjahöfn falli alveg niður séu fleiri en 10�??�??. Árangur af þessari 7-0 samþykkt er að nú stefnir í rúma 70 heila daga á ári í frátafir! Enn eru þau sammála og nú í því að viðhalda góðum samgöngum á sjó eins og segir hjá E-listanum og svo ætlar D-listinn að sýna áræði og þor og stíga þungt til jarðar í því að stórauka fjölda ferða á dag í Landeyjahöfn. Nú fyrir utan flugið og eru það nú ekki góð tíðindi fyrir okkur miðað við árangur síðastliðinna 12 ára.
Staðreyndin er sú að sá fjöldi ferða sem nýja ferjan getur farið frá 06:30 til 23:30 eða á 17 tímum eru aðeins 7 ferðir. En aftur að minnisblaðinu úr bæjarráði frá 4.12.2014 um ,,Flutningsgetu�??�??, þar segir: ,,Af þeim sökum er kapp lagt á að tryggja að nýja skipið geti siglt að minnsta kosti 8 ferðir á dag fyrir minni kostnað en Herjólfur siglir 5 ferðir á dag og innan sama tímaramma�??. Hver er útkoman?
Herjólfur getur auðveldlega farið 5 ferðir á tæpum 11 tímum en nýja ferjan þarf um 12 ½ tíma til að ná 5 ferðum. Til að ná 8 ferðum þarf nýja ferjan hvorki meira né minna en um 20 tíma.
Er nema von að hvorugt framboðið minnist á aðkomu sína að nýju ferjunni í afrekaskrá síðastliðinna ára. Lítið fer fyrir því að kynna árangur sammálalistanna um endurbætur Landeyjahafnar. Víkjum aftur að minnisblaði bæjarráðs frá 4.12.2014 um ,,Höfnina�??�??: ,,Bæjarfulltrúar hafa ítrekað krafist þess að smíðatími nýs skips verði nýttur til að gera úrbætur á Landeyjahöfn með það að markmiði að þegar hið nýja skip kemur til þjónustu standist það væntingar�??�??. Sést það einhverstaðar?
Við hjá bæjarmálafélaginu Fyrir Heimaey X-H álítum ástandið í samgöngum á sjó óásættanlegt og viljum einnig stórbæta samkeppnishæfni í flugsamgöngum.
�?að mun verða eitt af okkar fyrstu verkum í samgöngumálum að reyna að leysa flutningsþörfina á álagstímum sem eru frá kl. 8 til 13 og frá 17 til 22. �?að munum við gera með því að leita eftir háhraðaferju sem gæti t.d siglt með nýju ferjunni yfir sumartímann á meðan unnið er að nauðsynlegum úrbótum á Landeyjahöfn. Samhliða þessu munum við leita til þeirra aðila sem eru að framleiða fullkomnustu og afkastamestu ferjurnar í dag til að koma og skoða hér aðstæður og koma með tillögur að ferju sem getur þjónað þörfum okkar Vestmanneyinga.
Einnig skorum við á ráðherra samgöngumála að láta tafarlaust fara fram óháða úttekt á því hvernig hægt sé að bæta aðkomuna að Landeyjahöfn eins og stefnt var að í upphafi.
Kæru Vestmannaeyingar það þarf �??kjark til að breyta�??�?? og hann höfum við.
Kjósum með hjartanu �?? Fyrir Heimaey �?? Setjum X við H.
Sveinn Rúnar Valgeirsson.
Höfundur skipar 6. sæti á lista Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.