Hverjir sögðu hvað
15. mars, 2025
Oddvitar Sudurkj 2025 Fin
Ásthildur Lóa, Karl Gauti, Guðbrandur, Guðrún, Víðir og Halla Hrund. Mynd/samsett.

Í vikunni var greint frá því að búið sé að leggja fram á Alþingi þingsályktunartillögu um að hefja rannsóknir á jarðlögum og hafsbotni á fyrirhugaðri gangaleið milli lands og Vestmannaeyja. Flutningsmenn tillögunnar eru Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins og Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks.

Karl Gauti sagði í samtali við Eyjafréttir að hann hafi boðið öllum þingmönnum kjördæmisins að vera með á tillögunni.

Eyjafréttir leituðu skömmu fyrir síðustu þingkosningar til oddvita allra flokka sem buðu fram til þings og báðu um þeirra afstöðu til málsins. Hér að neðan má sjá svör þeirra framboða sem náðu mönnum inn á þing. Spurt var: Hyggst flokkurinn beita sér fyrir því að tryggja fjármuni til rannsókna á jarðlögum vegna Vestmannaeyjaganga?

Svör ríkisstjórnarflokkanna

Byrjum á að skoða hvað oddvitar ríkisstjórnarflokkanna í Suðurkjördæmi sögðu í nóvember sl.

Í svari Flokks fólksins sagði að Ásthildur Lóa Þórsdóttir, oddviti flokksins í Suðurkjördæmi að hún sé fylgjandi því að tryggja fjármagn fyrir þessa rannsókn.

Víðir Reynisson, oddviti Samfylkingarinnar svaraði spurningunni þannig: „Fyrirspurn um hvort við munum styðja við fjármögnun rannsóknar vegna jarðganga er mjög fljót svarað…já!“

Guðbrandur Einarsson oddviti Viðreisnar svaraði eftirfarandi: „Ég mun að sjálfsögðu styðja það að þetta verkefni fái framgang. Það er nauðsynlegt að fá vitneskju um hvort göng séu fýsilegur kostur eða ekki. Fyrsta mál er að tryggja þessar 60 milljónir og það getur ráðherra málaflokksins gert. Öðru þarf að ná í gegn í fjárlögum til þess að tryggja framgang málsins til lengri tíma.“

Svör stjórnarandstöðuflokka

Í svari Guðrúnar Hafsteinsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sagði: „Ég hef lengi lagt áherslu á bættar samgöngur á Suðurlandi og styð þrepaskipta rannsókn á fýsileika jarðganga til Vestmannaeyja. Ég mun beita mér fyrir því að tryggja fjármagn til þessa mikilvæga verkefnis.“

Í svari Miðflokksins og Karls Gauta Hjaltasonar, oddvita flokksins í Suðurkjördæmi sagði: „Já, við munum tryggja fjármuni til að fara í nauðsynlegar rannsóknir svo unnt verði að taka upplýsta ákvörðun um framhald verkefnisins. Þetta er mikilvægt skref til að meta fýsileika jarðgangna milli lands og Vestmannaeyja, og við teljum að rannsóknir á jarðlögum séu nauðsynlegar til að varpa skýrara ljósi á kostnað og ávinning verkefnisins. Við teljum að áframhaldandi rannsóknir og gagnasöfnun séu grunnforsenda til að hægt sé að taka upplýsta ákvörðun um þessa mikilvægu framkvæmd.“

Í svari frá Höllu Hrund Logadóttur sagði orðrétt: Við í Framsókn skiljum vel mikilvægi samgöngubóta fyrir Vestmannaeyjar og möguleg áhrif slíkra framkvæmda á atvinnulíf og lífsgæði íbúa. Framsókn hefur tekið samgöngumál til Vestmannaeyja alvarlega og sá stuðningur sem birtist meðal annars í rafvæðingu Herjólfs, því að rekstur hans sé í höndum heimamanna og stuðningi við Landeyjahöfn. Við fögnum því að þessi vinna sé komin af stað og munum setja fjármagn í hana á næsta kjörtímabili.

Við munum áfram fylgjast náið með þróun málsins og vinna að því að leita að bestu lausnum fyrir íbúa svæðisins. Með því vonumst við til að framþróun í þessum málum verði bæði farsæl og sjálfbær til lengri tíma.

Auk samgangna mun Framsókn leggja áherslu á frekari uppbyggingu atvinnulífs og innviða í Vestmannaeyjum. Nefni ég sem dæmi mikilvægi þess að pólitíkin ljúki innleiðingu vatnaáætlunar svo að hægt sé að hraða útgáfu landeldisleyfa. Það er mikið hagsmunamál. Annað mikið hagsmunamál fyrir Vestmannaeyjar er að nauðsynlegt er að klára framkvæmdir til að styrkja flutningskerfið til þess að draga úr skerðanlegum orkusölusamningum og flutningi fyrir bræðslurnar þar. Mörg fyrirtæki í Vestmannaeyjum eru á skerðanlegri orku og flutningi og með Vestmannaeyjalínum 4 og 5 er hægt að tryggja að flutningsgetan sé fullnægjandi þannig að ekki sé lengur þörf á skerðanlegum flutningi.

Ég mun því fylgjast náið með þróun þessara mála, bæði innviðauppbyggingu og samgöngumálum fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum. Markmið okkar er að stuðla að farsælum lausnum til lengri tíma fyrir eyjarnar, sagði í svari Höllu Hrundar í nóvember.

Af þessu má sjá að allir flokkar svöruðu þessari spurningu skýrt og á sömu leið. Næsta skref í málinu er fyrsta umræða á þingfundi og munu Eyjafréttir fylgjast áfram með þessu mikilvæga máli.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
ludra
8. nóvember 2025
16:00
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í Hvítasunnukirkjunni
Skemmtun
PXL 20251104 095848596
9. nóvember 2025
17:00
Bókakynning í Eldheimum - Óli Gränz
Skemmtun
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.