Hvítu tjöldin farin að setja svip á Dalinn - myndir
Bræðurnir Gunnar og Arnar Andersen virða fyrir sér súlurnar. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð náði enn einum stórum áfanga í kvöld þegar þjóðhátíðargestir flykktust í Herjólfsdal til að setja niður súlur fyrir hvítu tjöldin.

Mikið líf var í Dalnum þegar tjaldsúlunum var komið fyrir á úthlutuðum lóðum. Hvítu tjöldin eru órjúfanlegur hluti af Þjóðhátíð og þegar súlurnar rísa er óhætt að segja að hátíðarstemningin sé farin að magnast verulega.

Næsta skref er að flytja búslóðina í Dalinn og koma tjöldunum upp. Þjóðhátíðarnefnd biður fólk um að virða vel þær tímasetningar sem gefnar hafa verið upp fyrir flutningana. Þegar Dalurinn er lokaður sé meðal annars unnið þar með stór vinnutæki og verið að koma vörum og öðrum búnaði inn á hátíðarsvæðið.

Einnig er minnt á að fjölmargir sjálfboðaliðar leggja hönd á plóg við undirbúninginn og þurfi að komast heim á skikkanlegum tíma til að undirbúa sína eigin Þjóðhátíð.

„Gerum þetta saman í sátt og samlyndi, það er upphafið að góðri hátíð,“ segir í tilkynningu ÍBV. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, leit við í Herjólfsdal í kvöld og fangaði stemninguna þegar súlurnar voru settar niður í blíðunni.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.