Í aðdraganda kosninga
Nú eru örfáir dagar til kosninga í sveitastjórnum landsins. Landsmenn allir eru eflaust komnir með nóg af upplýsingum og loforðum á öllu milli himins og jarðar. Við hjá Fyrir Heimaey einsettum okkur í byrjun að reyna eftir fremsta megni að fá umræðu um hvað mætti betur fara í okkar samfélagi. Við erum ungt bæjarmálafélag byggt á breiðum grunni fólks sem vill bæta samfélagið. �?að hefur fallið í misjafnan jarðveg hjá þeim sem hafa setið við stjórnvölinn undanfarin ár og einnig þeim sem hafa unnið í minnihluta. �?að sem við teljum að við höfum allavega náð fram í þessari kosningabaráttu er að færa umræðuna að mestu leyti yfir á málefnalegar nótur. �?ó hafa einhverjar undantekningar verið á því og fólk frekar hjólað í persónur, reynt að koma með fýlugreinar og margt annað sem að okkar mati er til að slá ryki í augun á kjósendum. Við viljum opnar umræður um hagsmunamál bæjarbúa, við viljum að fólk fái að hafa skoðanir og sé ekki hrætt við að tjá þær skoðanir án þess að vera sakað um sundrungartal eða óþarfa neikvæðnisathugasemdir. Við sjáum það á stefnuskrám hinna framboðanna að við höfum allavega komið inn með ferska vinda í umræðuna. �?að eru meira að segja framboð farin að tala um opnari stjórnsýslu og að framkoma fulltrúa bæjarins á öllum stigum sé framborin af auðmýkt og virðingu en samt formfestu og öruggrar hagsmunagæslu fyrir þessa gersemi sem bæjarfélagið okkar er. Fyrir það erum við stolt, því að við erum ungt afl og teljum okkur hafa margt fram að færa í umræðuna. Við höfum náð að breyta henni á jákvæðan hátt, án þess einu sinni að vera komin með kjörna fulltrúa í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Við göngum full sjálfstrausts og full af bjartsýni inn í þessa síðustu daga kosningabaráttunnar. Við teljum fulla þörf á að fólk þurfi að hafa valkost eins og við erum. Valkost sem fólk virðist samsvara sig við og þessar jákvæðu undirtektir sem við höfum fundið fyrir hjá flestum, gefa okkur svo mikið. Við ætlum að standa undir því nafni og málefnum sem við stöndum fyrir. �?að er líka ljúft á þessum degi að fagna nýjasta titlinum hjá ÍBV í handboltanum. �?ví að við stöndum einmitt fyrir það að styðja og styrkja þetta frábæra félag sem við eigum saman og sameinar okkur öll í þeirri gleði og sigurvilja sem við berum í brjósti okkar. Setjum X við H á kjördag.
Fyrir Heimaey
Styrmir Sigurðarson 12.sæti

Nýjustu fréttir

Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Arnar Pétursson valdi leikmannahóp fyrir lokaleiki undankeppni EM
Ófært í Þorlákshöfn – Herjólfur bíður átekta fyrir utan höfnina – uppfært
Veðrið gengur niður
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Snælduvitlaust veður í Vestmannaeyjum
Bókin um ESB – Hvað er í pakkanum? 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.