Sveitarfélagið Ölfus stofnar Orkufélagið Títan ehf.

Félagið er rekstrarfélag og er tilgangur þess orkurannsóknir, orkuvinnsla og rekstur hitaveitu í þágu Sveitarfélagsins Ölfus og annarra sveitarfélaga og hagaðila á áhrifasvæði þess og rekstur tengdra mannvirkja.

Í stjórn félagsins náðu kjöri:  Grétar Ingi Erlendsson sem jafnframt var kosinn formaður stjórnar og  meðstjórnendur Sandra Dís Hafþórsdóttir, Kristín Magnúsdóttir. Í varastjórn voru kosin Hrönn Guðmundsdóttir og Gestur Þór Kristjánsson. Jafnframt var Elliði Vignisson ráðinn framkvæmdastjóri með prókúru.

Elliði Vignisson, framkvæmdastjóri Títan:

Aðgengi að orku er að verða ein helsta ógn verðmætasköpunar á Íslandi og mikilvægt að allir leggist á eitt til að hreyfa við málum. Það verður ekki við það búið að hér takmarkist verðmætasköpun af því að ekki sé nægt aðgengi að orku.Sveitarfélagið Ölfus er eitt orkuríkasta svæði á Íslandi með fjölmarga kosti til nýtingar. Við höfum sótt fast fram á forsendum framleiðslu á umhverfisvænum matvælum og fl. og berum því ábyrgð á því að innviðir eins og aðgengi að orku verði tryggðir. Hlutverk félagsins verður fyrst og fremst að koma fram í þessum málum fyrir hönd Sveitarfélagsins Ölfus og þá eftir atvikum í samstarfi við orkufyrirtæki með aðgengi að þekkingu, tækjum og fjármagni. Þannig er það ekki séð sem hlutverk félagsins að standa í áhætturekstri heldur að leita samstarfs sem tryggir íbúum verðmætasköpun og velferð.“

Grétar Ingi Erlendsson, stjórnarformaður

„Með stofnun Títan hyggjumst við beita okkur enn fastar en áður fyrir nýtingu orkukosta innan Sveitarfélagsins Ölfus í þeim tilgangi að tryggja íbúum og fyrirtækjum aðgengi að orku. Í þessu samhengi horfum við meðal annars til nýtingar á Ölkelduhálsi með möguleika á skáborun undir Reykjadal, Grændal og Gufudal, þá er þekkt aðgengi að orku í Ölfusdal, við Hlíðardalsskóla og víðar innan Sveitarfélagsins. Við höfum á seinustu árum verið of miklir áhorfendur í orkumálum og til að mynda séð sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu byggja upp stærsta jarðorkuver í heimi upp hér í Ölfusinu. Svo magnað sem það er þá nýtist þessi mikla orka sem þar er unnin ekki fyrir fyrirtæki hér á svæðinu heldur er hver einasti dropi nýttur á höfuðborgarsvæðinu auk smáræðis innan lóðar þeirra á Hellisheiði. Þessu ætlum við að breyta með því að stíga sjálf fram í þessum málum.“

 Elliði Vignisson, bæjarstjóri

 

Nýjustu fréttir

Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026
Emil Gautason í lokahóp u-16
900 krónur urðu að 45 milljónum!
Vara við snjóhengjum og grýlukertum
Staðan í Viðlagafjöru þremur árum eftir fyrstu skóflustungu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.