ÍBV B áfram í 16-liða úrslit Powerade bikarsins eftir sigur á Herði
Gabríel Martinez.

ÍBV B tók á móti Herði í 32-liða úrslitum Powerade bikars karla í Vestmannaeyjum í dag. ÍBV hafði þar betur, 32–28, og tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum bikarsins.

Harðarmenn höfðu yfirhöndina framan af leiknum og voru tveimur mörkum yfir, 5–7, eftir tíu mínútna leik. Eftir það sneru ÍBV menn leiknum sér í hag og náðu þriggja marka forystu þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. ÍBV leiddi með tveimur mörkum, 17–15, þegar flautað var til hálfleiks.

ÍBV hélt sama dampi í síðari hálfleik og var með tveggja marka forystu, 23–21, þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Eyjamenn náðu síðan fimm marka forystu þegar skammt var eftir og héldu forskoti sínu út leikinn. Þeir fögnuðu að lokum nokkuð öruggum fjögurra marka sigri, 32-28. 

Óliver Daðason var markahæstur í liði ÍBV B með tíu mörk.

Mörk ÍBV: Óliver Daðason 10 mörk, Theodór Sigurbjörnsson 8, Ágúst Emil Grétarsson 5, Garðar Benedikt Sigurjónsson 4, Nökkvi Snær Óðinsson 4, Ólafur Már Haraldsson 1.

Nýjustu fréttir

Eyjakonur mæta taplausu liði ÍR í dag
ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins með sigri á ÍR
Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað
Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
Cornelia Hermansson gengur til liðs við ÍBV
Íslandsbanki varar við svikasímtölum
Tölum saman í FÍV á morgun
Útflutningur eldisafurða kominn í tæpan 51 milljarð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.