Jóker-vinningur á miða úr Eyjum

Einn þeirra ellefu miða sem hlutu 2. vinning í Jóker í kvöld var keyptur á Bensínsölunni Kletti í Vestmannaeyjum. Hver vinningshafi fær 125 þúsund krónur í sinn hlut. Enginn var með allar Jókertölurnar réttar. Einn miðaeigandi var hins vegar með 1. vinning í Lottó og fær rúmar 129 milljónir króna. Vinningsmiðinn var keyptur í Fjarðarkaupum […]
ÍBV B áfram í 16-liða úrslit Powerade bikarsins eftir sigur á Herði

ÍBV B tók á móti Herði í 32-liða úrslitum Powerade bikars karla í Vestmannaeyjum í dag. ÍBV hafði þar betur, 32–28, og tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum bikarsins. Harðarmenn höfðu yfirhöndina framan af leiknum og voru tveimur mörkum yfir, 5–7, eftir tíu mínútna leik. Eftir það sneru ÍBV menn leiknum sér í hag og […]
Kjötsúpa, söngur og góður félagsskapur

Karlakór Vestmannaeyja hóf vetrarstarfið með sínu árlega kjötsúpukvöldi í Kiwanishúsinu í gærkvöldi. Boðið var upp á rjúkandi kjötsúpu, léttar veitingar og að sjálfsögðu söng. Kvöldið er jafnframt hugsað sem tækifæri fyrir áhugasama til að kynnast starfi kórsins og þeim góða félagsskap sem þar ríkir. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, leit við og fangaði stemninguna. Myndir […]
ÍBV fagnaði tveggja marka sigri gegn Selfossi

Kvennalið ÍBV í handbolta tók á móti Selfossi í 3. umferð Olís deildar kvenna í Vestmannaeyjum í dag. Eyjakonur fögnuðu þar tveggja marka sigri, 36–34. Leikurinn var jafn framan af og var staðan 4–4 eftir sex mínútna leik. ÍBV tók þá frumkvæðið og náði þriggja marka forystu, 13–10, eftir stundarfjórðung. Selfosskonur unnu sig hins vegar […]
NÆS fer með vestmanneyska matargerð til London

Veitingastaðurinn NÆS í Vestmannaeyjum heldur til London um helgina, þar sem teymið verður með pop-up á veitingastaðnum Mareida sunnudaginn 20. september. Mikill áhugi hefur verið á viðburðinum og er nú fullbókað. Viðburðurinn kemur í beinu framhaldi af sumrinu hjá NÆS, sem hefur nú lokað fyrir veturinn eftir gott og annasamt sumar í Vestmannaeyjum. Teymið heldur […]
Nóg að gera og skemmtilegt bæði í vinnunni og skólanum

Árni Þór Ingólfsson hóf nám í húsasmíði árið 2023 og vinnur nú hjá Sæla og Sigga, þar sem honum líkar vel. „Þeir eru æðislegir,“ segir hann og hlær. „Ég byrjaði hjá þeim fyrr í sumar og hef lært mikið.“ Árni Þór stefnir á sveinspróf næsta vor og er ánægður með námið. „Kennslan er mjög góð […]
Gígja og Leifur tóku heimilið í gegn

Gígja Óskarsdóttir og Leifur Jóhannesson festu kaup á húsi sínu í október 2014. Þau vissu strax að þau myndu vilja ráðast í framkvæmdir síðar meir, en ákváðu að gera það ekki strax. Í febrúar í fyrra ákváðu þau loks að láta slag standa og ráðast í framkvæmdirnar. Á aðeins einni viku pökkuðu þau niður heilli […]
Yfir tvær milljónir umbúða fara árlega í gegnum móttökuna í Eyjum

Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvernig móttöku skilagjaldsskyldra umbúða verður háttað í Vestmannaeyjum eftir að samningi Endurvinnslunnar hf. við Heimaey vinnu- og hæfingarstöð lýkur 1. febrúar næstkomandi. Yfir tvær milljónir umbúða fara árlega í gegnum móttökuna í Eyjum. Endurvinnslan undirbýr nú leit að nýjum samstarfsaðila og segist munu kappkosta að tryggja samfellda þjónustu. Hvort […]
Tvöfaldur handboltadagur í Íþróttamiðstöðinni

Tveir handboltaleikir fara fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja á laugardag. Kvennalið ÍBV tekur á móti Selfossi í Olísdeildinni klukkan 14:00 og að þeim leik loknum mæta ÍBV B og Hörður frá Ísafirði í Powerade-bikarnum. Eyjakonur hafa tvö stig eftir fyrstu tvo leiki sína í deildinni. Þær hófu tímabilið með 32:28 sigri á KA/Þór en töpuðu 31:27 […]