Nóg að gera og skemmtilegt bæði í vinnunni og skólanum 
Árni Þór Ingólfsson.
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Árni Þór Ingólfsson hóf nám í húsasmíði árið 2023 og vinnur nú hjá Sæla og Sigga, þar sem honum líkar vel. „Þeir eru æðislegir,“ segir hann og hlær. „Ég byrjaði hjá þeim fyrr í sumar og hef lært mikið.“ 

Árni Þór stefnir á sveinspróf næsta vor og er ánægður með námið. „Kennslan er mjög góð og ég hef verið hjá Halldóri allan tímann. Við byrjuðum á að læra á handverkfæri og smíða meðal annars koll og tröppur. Nú tekur við undirbúningur fyrir sveinsprófið og námið er mjög fjölbreytt,“ segir Árni Þór. Það sama á við um vinnuna. 

„Við erum að smíða þök, smíða og setja í glugga og hurðir og vinna við innréttingar. Það er nóg að gera og skemmtilegt bæði í vinnunni og skólanum,“ segir Árni Þór, sem horfir björtum augum til framtíðar. 

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.