Jóker-vinningur á miða úr Eyjum
lotto-2.jpg
Einn miðanna sem hlutu 2. vinning í Jóker kvöldsins var keyptur á Bensínsölunni Kletti.

Einn þeirra ellefu miða sem hlutu 2. vinning í Jóker í kvöld var keyptur á Bensínsölunni Kletti í Vestmannaeyjum. Hver vinningshafi fær 125 þúsund krónur í sinn hlut. Enginn var með allar Jókertölurnar réttar.

Einn miðaeigandi var hins vegar með 1. vinning í Lottó og fær rúmar 129 milljónir króna. Vinningsmiðinn var keyptur í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.

Þrír skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 400 þúsund krónur. Tveir miðanna voru keyptir í Lottó-appinu og einn á N1 Háholti.

Af miðunum ellefu sem hlutu 2. vinning í Jóker voru sex keyptir í Lottó-appinu, tveir í áskrift, einn á lotto.is, einn á Vídeómarkaðinum í Hamraborg og einn á Bensínsölunni Kletti í Vestmannaeyjum.

Vinningstölur kvöldsins í Lottó voru 13, 25, 29, 33 og 38 og bónustalan var 9. Jókertölurnar voru 8–7–2–8–4.

Nýjustu fréttir

ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins með sigri á ÍR
Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað
Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
Cornelia Hermansson gengur til liðs við ÍBV
Íslandsbanki varar við svikasímtölum
Tölum saman í FÍV á morgun
Útflutningur eldisafurða kominn í tæpan 51 milljarð
Sigurbergur ráðinn tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.