NÆS fer með vestmanneyska matargerð til London
Naes
Starfsfólk Næs. Myndir: Karl Petersson

Veitingastaðurinn NÆS í Vestmannaeyjum heldur til London um helgina, þar sem teymið verður með pop-up á veitingastaðnum Mareida sunnudaginn 20. september. Mikill áhugi hefur verið á viðburðinum og er nú fullbókað.

Viðburðurinn kemur í beinu framhaldi af sumrinu hjá NÆS, sem hefur nú lokað fyrir veturinn eftir gott og annasamt sumar í Vestmannaeyjum. Teymið heldur þó beint áfram til London, þar sem markmiðið er að taka með sér hluta af Eyjum og kynna þá matargerð og nálgun sem hefur einkennt NÆS.Naes

„NÆS er mjög tengt Vestmannaeyjum, hráefninu og umhverfinu sem við höfum í kringum okkur. Það er ótrúlega gaman að fá tækifæri til að taka þetta með okkur út og sýna okkar nálgun á íslenska og vestmanneyska matargerð í London. Viðtökurnar hafa verið frábærar og það er sérstaklega gaman að fara út vitandi að kvöldið er fullbókað,“ segir Gísli Matthías Auðunsson, einn eigenda NÆS.

Kvöldið er samstarfsverkefni NÆS og Mareida, veitingastaðar í Soho í London sem leggur áherslu á matargerð frá Chile. Teymin tvö hafa sett saman sérstakan matseðil þar sem matargerð NÆS mætir bragðheimi Mareida.

Á matseðlinum verða meðal annars réttir með fiski, þorskvængjum og lambasíðu, ásamt skyri, rabarbara, íslenskum jurtum og öðru hráefni sem tengist matargerð NÆS og Vestmannaeyjum.

Ferðin til London verður þannig eins konar lokapunktur á sumarið hjá NÆS áður en staðurinn fer í vetrarfrí.

„Við erum ótrúlega þakklát öllum sem komu til okkar í sumar og ekki síst frábæra teyminu okkar. Það er alltaf sérstakt að reka veitingastað í Vestmannaeyjum yfir sumarið og við erum strax farin að hlakka til að opna aftur næsta sumar. En fyrst ætlum við að taka NÆS aðeins út fyrir Eyjar og enda sumarið saman í London.“

NÆS x Mareida
Sunnudaginn 20. september 2026
Mareida, 34 Hanway Street, London
Fullbókað

Nýjustu fréttir

NÆS fer með vestmanneyska matargerð til London
Nóg að gera og skemmtilegt bæði í vinnunni og skólanum 
Gígja og Leifur tóku heimilið í gegn   
Yfir tvær milljónir umbúða fara árlega í gegnum móttökuna í Eyjum
Tvöfaldur handboltadagur í Íþróttamiðstöðinni
Leggja til lækkun fasteignaskatts
ÍBV hafði betur í sjö marka leik gegn bikarmeisturunum
Nýir eigendur taka við Kránni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.