ÍBV fagnaði tveggja marka sigri gegn Selfossi
Úr leik ÍBV og KA/Þór. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Kvennalið ÍBV í handbolta tók á móti Selfossi í 3. umferð Olís deildar kvenna í Vestmannaeyjum í dag. Eyjakonur fögnuðu þar tveggja marka sigri, 36–34. 

Leikurinn var jafn framan af og var staðan 4–4 eftir sex mínútna leik. ÍBV tók þá frumkvæðið og náði þriggja marka forystu, 13–10, eftir stundarfjórðung. Selfosskonur unnu sig hins vegar aftur inn í leikinn og náðu að jafna metin. Staðan var 18–18 þegar flautað var til hálfleiks.

Fyrstu mínútur síðari hálfleiks voru áfram nokkuð jafnar en smám saman tóku Eyjakonur að síga fram úr. ÍBV náði fimm marka forskoti, 31–26, þegar tæpar fimmtán mínútur voru til leiksloka.

Selfosskonur gáfust þó ekki upp og minnkuðu muninn í tvö mörk, 36–34, undir lok leiks. Nær komust þær hins vegar ekki og ÍBV fagnaði að lokum tveggja marka sigri. Lokatölur leiksins 36-34.  

Eftir þrjár umferðir situr ÍBV í fjórða sæti deildarinnar með fjögur stig. Selfoss er í sjötta sæti með 2 stig.

Birna Berg Haraldsdóttir átti stórleik í liði ÍBV og var markahæst með tíu mörk. 

Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 10, Andrea Jacobsen 8 mörk, Sandra Erlingsdóttir 8, Ásdís Halla Hjarðar 4, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 1. 

Úrslit dagsins í Olís deild kvenna:

  • ÍBV 36 – 34 Selfoss
  • Grótta 27 – 32 Stjarnan
  • Fram 26 – 23 HK

Nýjustu fréttir

Eyjakonur mæta taplausu liði ÍR í dag
ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins með sigri á ÍR
Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað
Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
Cornelia Hermansson gengur til liðs við ÍBV
Íslandsbanki varar við svikasímtölum
Tölum saman í FÍV á morgun
Útflutningur eldisafurða kominn í tæpan 51 milljarð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.