ÍBV skoðar norskan framherja
ÍBV fær norska framherjann Stale Steen Sæthre til sín á reynslu næstkomandi sunnudag. �?etta staðfesti Kristján Guðmundsson, þjálfari liðsins, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Stale æfir með ÍBV í næstu viku og spilar með liðinu gegn FH í Fótbolta.net mótinu um aðra helgi.
Stale er 23 ára gamall en hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá Stabæk þar sem hann lék þrjá leiki í úrvalsdeildinni.
Síðan þá hefur Stale leikið með Asker, Fyllingsdalen og Førde en síðast var hann hjá Lysekloster í norsku C-deildinni. Stale var markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili.
ÍBV hefur leik í Fótbolta.net mótinu á laugardag klukkan 10:00 en liðið mætir þá Breiðabliki í Fífunni. Leikurinn verður sýndur beint á sporttv.is.

Nýjustu fréttir

Nýja vatnslögnin á leið til Eyja
Birkir meðal öflugustu stjórnenda undir fertugu
Samfélagið má ekki afskrifa tossana
Áform um 120 herbergja hótel í Hásteinsgryfju
ÍBV fær Aron Lucas á láni frá Selfossi
Anton Frans, Morgan Goði og Sigurmundur Gísli komnir áfram í 8-liða úrslit EM með u-18 ára landsliðinu
ÍBV semur við markmann frá Serbíu
HSU vinnur að úrbótaáætlun en svarar ekki spurningum um mönnun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.