ÍBV er komið með aðra hönd á bronsið, ef svo mætti að orði komast, eftir sigur á HK í Eyjum í kvöld. Lokatölur urðu 27:22 en staðan í hálfleik var 16:10. ÍBV hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleik og náði um tíma sjö marka forystu en HK kom öflugt til leiks í þeim síðari og eftir aðeins tíu mínútna leik, var forysta ÍBV komin niður í tvö mörk.