Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Miðflokkurinn lagði til Trausta sem bæjarstjóra
Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs, og Íris Róbertsdóttir eftir undirritun ráðningarsamnings sem staðfestir ráðningu Írisar sem bæjarstjóra Vestmannaeyja kjörtímabilið 2026–2030. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fyrsta fundi sínum að ráða Írisi Róbertsdóttur áfram í starf bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar til næstu fjögurra ára.

Tillagan var samþykkt með atkvæðum allra fimm bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Tveir bæjarfulltrúar Miðflokksins greiddu atkvæði gegn tillögunni en tveir bæjarfulltrúar Eyjalistans sátu hjá.

Við afgreiðslu málsins lagði Miðflokkurinn fram breytingartillögu þar sem lagt var til að Trausti Hjaltason yrði ráðinn bæjarstjóri í stað Írisar.

Í greinargerð með tillögunni sögðu bæjarfulltrúar Miðflokksins að tímabært væri að ráðast í breytingar á embætti bæjarstjóra samhliða breytingum á skipan bæjarstjórnar. Þar vísuðu þeir meðal annars til umræðu um starfsanda og framkomu gagnvart starfsfólki innan sveitarfélagsins og sögðu sveitarfélagið þurfa nýja forystu sem gæti byggt upp traust, eflt samstarf og skapað jákvætt starfsumhverfi til framtíðar.

Breytingartillagan fékk stuðning tveggja bæjarfulltrúa Miðflokksins en var felld með sjö atkvæðum bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Eyjalista. Í kjölfarið var tillaga um ráðningu Írisar Róbertsdóttur og ráðningarkjör hennar borin upp og samþykkt.

Íris hefur gegnt starfi bæjarstjóra Vestmannaeyja frá árinu 2018 og mun með þessari ákvörðun gegna embættinu áfram á kjörtímabilinu 2026–2030. Hér má sjá nýjan ráðningarsamning bæjarstjóra.

Nýjustu fréttir

Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
ÍBV og KA skildu jöfn á Hásteinsvelli
Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar
Djamm Original heldur í hefðirnar  – Frá Bridgerton í aldamótastuð
Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV
Guðný Geirsdóttir – Íþróttamaður mánaðarins
Vestmannaeyjar í lykilhlutverki á 100 ára afmæli Landhelgisæslunnar
Þjónustuþegum í lengdri viðveru fjölgar um helming
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.