Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn

Skólaslit vorannar 2026 fóru fram í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum 29. maí. Við athöfnina voru 45 nemendur brautskráðir af sex mismunandi námsbrautum. Að lokinni brautskráningu fluttu fulltrúar ýmissa félaga og stofnana ávörp og afhentu viðurkenningar fyrir námsárangur, þátttöku í félagsstörfum og framlag til skólasamfélagsins. Fyrir hönd Íþróttaakademíu ÍBV og FÍV afhenti Sigríður Inga Kristmannsdóttir barmmerki ÍBV og viðurkenningar þeim […]
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fyrsta fundi sínum að ráða Írisi Róbertsdóttur áfram í starf bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar til næstu fjögurra ára. Tillagan var samþykkt með atkvæðum allra fimm bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Tveir bæjarfulltrúar Miðflokksins greiddu atkvæði gegn tillögunni en tveir bæjarfulltrúar Eyjalistans sátu hjá. Við afgreiðslu málsins lagði Miðflokkurinn fram breytingartillögu þar sem lagt var til að […]
Selma rifjar upp árin með Gunnari á sjó og í landi

„Ég var 17 ára þegar við Gunnar kynntumst,“ segir Selma Jóhannsdóttir, eiginkona Gunnars heitins Jónssonar, og hlær. „Við vorum kannski þroskaðri á þessum árum og aðstæður voru líka aðrar. Við gátum byggt okkur hús og fórum fyrr að heiman en krakkar gera í dag.“ Selma segir að fólk sé líka lengur í námi nú en […]