Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Kristín Klara Óskarsdóttir. Mynd/ÍBV knattspyrna

Kristín Klara Óskarsdóttir, leikmaður ÍBV í fótbolta, lék með u-19 ára landsliði Íslands í Sundsvall í Svíþjóð á dögunum. Liðið lék tvo leiki, gegn Noregi og Svíþjóð, en leikir liðsins fóru fram á laugardag og mánudag.

Á Facebook-síðu ÍBV segir, ,,Kristín var í leikmannahópnum ásamt mörgum leikmönnum úr Bestu deildinni en hún var í byrjunarliðinu gegn Norðmönnum á laugardaginn þegar íslenska liðið vann 3-2 sigur. Kristín lék þar 60 mínútur í hægri bakverðinum og þótti standa sig mjög vel. Kristín kom inn í hálfleik í seinni leik liðsins gegn heimakonum frá Svíþjóð en þar reyndust sænsku stelpurnar sterkari og unnu 1-0 sigur. Þá lék hún aftur í hægri bakverðinum og gerði það vel.”

U-19 landsliðið mun leika í lokakeppni Evrópumótsins í sumar en þær unnu sinn riðil í undankeppninni í vor. Í riðli með Íslandi voru Finnland, Serbía og Danmörk. 

Evrópumótið fer fram dagana 27. júní – 10. júlí og leikið er í Bosníu og Hersegóvínu. Ísland verður í riðli með Austurríki, Spáni og Sviss. Átta sterkustu þjóðir álfunnar í þessum aldursflokki leika á lokamótinu og fara tvö efstu lið hvors riðils áfram í undanúrslit. 

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.