Skólanum slitið á Stakkó
Grunnskólanum var slitið á Stakkó í morgun.

Skólaslit Grunnskóla Vestmannaeyja fóru fram á Stakkó í morgun við hátíðlega athöfn. Nemendur mættu fyrst í skólann klukkan 10:00 og gengu þaðan ásamt kennurum yfir á Stakkó þar sem skólaárinu var formlega slitið.

Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg. Skólalúðrasveit Vestmannaeyja lék fyrir gesti og nemendur í yngri bekkjum sýndu dansatriði sem þeir höfðu æft fyrir tilefnið.

Þrátt fyrir að rigning hafi látið á sér kræla var veðrið ágætt og stemningin góð. Börnin létu veðrið ekki aftra sér og nutu dagsins.

Með skólaslitunum lýkur enn einu skólaári og nú tekur sumarfríið við hjá nemendum.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.