Uppsjávarveiðiskipið Faxi RE er kominn með sitt gamla nafn, Kap VE, í kjölfar eigendaskipta.
HB Grandi afhenti skipið í gær til nýs eiganda, Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Að því búnu hélt skipið til síldveiða fyrir vestan land.
Salan á Faxa er liður í endurnýjun uppsjávarveiðiskipa HB Granda. Ingunn AK var einnig seld til Vinnslustöðvarinnar og afhent þangað fyrr á árinu. Unnið er að sölu þriðja skipsins, Lundeyjar NS.