Ég býð mig fram til setu á stjórnlagaþingi 2011. Ásamt 522 öðrum. Augljóst er að það verður ekki létt verk fyrir kjósendur að kynna sér hvað hver og einn frambjóðandi stendur fyrir í þessum sögulegu kosningum sem framundan eru. Þar af leiðandi er ekki langsótt að spá því að kjósendur muni skipta frambjóðendum í tvo hópa, annars vegar þá róttæku sem vilja gerbreyta stjórnarskránni og hins vegar þá sem telja hana ágæta fyrir sitt leyti en eru samþykkir því að eitt og annað megi endurskoða.