Kostnaður við almannavarnarlögnina NSL-4 í Vestmannaeyjum hefur hækkað verulega og er nú áætlaður um 3 milljarðar króna, nær tvöfalt meira en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir.
Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í gær þar sem farið var yfir drög að erindi til innviðaráðuneytisins. Heiðar Ásberg Atlason lögmaður kynnti stöðu verkefnisins.
Í viljayfirlýsingu frá 2023 var gert ráð fyrir að framkvæmdin myndi kosta um 1,6 milljarða króna. Þar var miðað við að ríkið legði til helming kostnaðar, eða 800 milljónir króna. Ljóst er að það framlag dugar skammt miðað við nýtt kostnaðarmat, en hækkunin er rakin til utanaðkomandi þátta, hækkunar aðfanga og alþjóðlegrar stöðu.
Í bókun bæjarráðs kemur fram að sveitarfélagið geti ekki staðið undir framkvæmdinni eitt og sér. Vestmannaeyjabær rekur þegar vatnslögnina NSL-3 og tekjur af henni standa einungis undir rekstri hennar. Þá er bent á að það sé ekki hlutverk sveitarfélags að tryggja almannavarnir né reka tvær vatnslagnir.
Vatnshópur sveitarfélagsins fór yfir drög að erindinu á fundi 24. mars. Bæjarráð samþykkti að senda erindið til innviðaráðuneytisins með þeim viðbótum sem ræddar voru á fundinum, þar sem lögð er áhersla á breyttar forsendur og þörf fyrir aukna aðkomu ríkisins.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.