Eyjakonur taka þátt í EHF-bikarnum í handbolta á næstu leiktíð en Framkonur leika í Áskorendabikarnum. Bæði íslensku liðin eru í efri styrkleikaflokki en Valur afþakkaði sæti sitt í Evrópukeppni þetta árið. Eins og hjá körlunum verður dregið næsta þriðjudag en ÍBV getur lent á móti eftirtöldum liðum og sjá glöggir menn að nokkur lið eru frá þjóðum sem fólk tengir ekki endilega við handbolta og má þar nefna Kosovo og frænkur okkar frá Færeyjum en einnig er eitt breskt lið í pottinum.
Bnei Hertzeliya, Ísrael
Kastrioti, Kósóvó
Jomi Salerono, Ítalíu
Tecton Atzgersdorf, Austurríki
Olympia, Bretlandi
Kyndill, Færeyjum
Ankara Yenimahalle, Tyrklandi
Brühl, Sviss
Anagennisi Artas, Grikklandi
fimmeinn.is greindi frá