Lagið Drottinn ég tilbið þig hreyfði við mörgum
Guðrún: Mér þykir mjög vænt um, Drottinn ég tilbið þig og ég veit að það hefur snert við mörgum meðal annars Guggu Lísu sem valdi það á fallegu og gefandi plötuna sína. Mynd Guðni Einarsson.

„Drottinn ég tilbið þig er lag sem ég samdi  þegar ég bjó í Eyjum. Þetta er tilbeiðslulag og bæn um frelsun,  Bæn um frelsun bæði hina stærstu og svo freslun frá því sem angrar fólk dagsdaglega. Litlar áhyggjur og vanlíðan sem og miklar,“ segir Eyjakonan Guðrún Erlingsdóttir sem á lag á plötu Guðbjargar Elísu Hafsteinsdóttur, sem er þekkt undir listamannsnafninu Gugga Lísa, gaf  nýverið  út plötuna Komi ríki þitt.

„Ég var búin að semja tvö, þrjú lög sem öll voru frumflutt á Aglow fundum heima í Eyjum og ég fékk mikla hvatningu frá Aglowkonunum mínum til að halda áfram að semja.  Ég fékk síðar gagnrýni  frá aðila um að lögin mín væru ekki sálmar eða lofgjörð. þau væru of löng og  þau ættu að passa á eina glæru. Ég með mitt litla sjálfstraust þegar kom að tónlistinni á þeim tíma, ætlaði fyrst að taka gagnrýnina til mín og  hætta að semja,“ segir Guðrún sem lét þá ekki deigan síga.

„Ég hafði fengið lögin mín til mín og var viss um að þau væru frá Guði komin og þess vegna hafið ég kjarkinn til þess að flytja þau opinberlega. Mér fannst skrýtið að Guð skyldi hafa gefa mér þá náðargáfu að semja lög og texta sem væru svo ekki nógu góð. Í stað þess að gefast upp, settist ég við gluggan minn í Dverghamrinum, tók upp gítarinn og sagði við Guð að nú þyrfti ég einnar glæru tilbeiðslulag og ég þyrfti það núna.

Lagið og textinn komu samhliða og á tíu mínútum var lagið tilbúið. Þá fékk ég vissu um að ég væri að gera það sem mér bar.  Mér þykir mjög vænt um, Drottinn ég tilbið þig og ég veit að það hefur hreyft við mörgum meðal annars Guggu Lísu sem valdi það á fallegu og gefandi plötuna sína.“

Hlekkur á lag Guðrúnar.

Nýjustu fréttir

Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.