Lagt til að Cloé öðlist ís­lensk­an rík­is­borg­ara­rétt

Alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd alþing­is legg­ur til að kanadíska knatt­spyrnu­kon­an Cloé Lacasse, sem er að spila sína fimmtu leiktíð með ÍBV, öðlist ís­lensk­an rík­is­borg­ara­rétt. Von­ir standa til að alþingi samþykki til­lögu alls­herj­ar-og mennta­mála­nefnd­ar fyr­ir þinglok og verði sú raun­in verður Cloé Lacasse gjald­geng í ís­lenska landsliðið.

Cloé er 25 ára göm­ul og er ann­ar marka­hæsti leikmaður ÍBV í efstu deild frá upp­hafi með 50 mörk. Cloé er ann­ar marka­hæsti leikmaður­inn í Pepsi Max-deild­inni, hef­ur skorað 7 mörk í sex leikj­um ÍBV í deild­inni, mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.