Langa mun framleiða kollagen
Mynd: Langa

Langa ehf. opnar kollagenverksmiðju í næsta mánuði þar sem framleitt verður kollagen úr fiskroði, er segir á vef Fiskifrétta Viðskiptablaðsins. Unnið verður úr 100 til 150 tonnum af roði á mánuði, þ.e. 1.200 til 1.800 tonnum á ári og mun roðið koma bæði frá fiskvinnslum í Eyjum en líka ofan af landi. Undirbúningurinn að verkefninu hefur staðið í tvö ár.

„Við horfum líka til þess að vinna feitar afurðir, sem hafa almennt verið til vandræða fyrir vinnsluna hérna, brjóta þær niður í olíu og próteinhydrolysöt með ensímum. Með þessari aðferð er hægt að brjóta niður nánast hvaða fiskilífmassa sem er. En auðvitað er kollagen mjög áhugaverð vara og markaður þá vöru er mjög góður,” sagði Hallgrímur Steinsson, framkvæmdastjóri Löngu, í samtali við Fiskifréttir.

Nýjustu fréttir

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Ellert Scheving segir upp hjá ÍBV
Stefna að því að hámarksbið eftir greiningu verði 12–18 mánuðir
Er samveran komin á verkefnalistann fyrir jólin?
Fórnarlamba umferðarslysa minnst í Eyjum – myndir
Vara við áhrifum útflutningstakmarkana á kjör sjómanna
Vikan í Eyjum: Hundrað ára afmæli, salernin á Vigtartorgi og stig gegn toppliðinu
Elmar markahæstur í sigri Nordhorn-Lingen
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.