Jæja þá er komið að því að kjósa. Laugardaginn 26. maí n.k. göngum við að kjörborðinu eins og það er kallað. Í boði eru þrír listar, tveir frá Sjálfstæðisflokki D og H, og einn myndaður af samstarfi félagshyggjufólks og óháðra, Eyjalistinn. �?að er þessi H listi sem mig langar að vara fólk við, sérstaklega fólk sem skoðanalega séð er á miðjunni og vinstri vængnum. H-listinn er klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokki og er í engu frábrugðinn honum. Á listanum eru 8-10 harðkjarna Sjálfstæðismenn, fólk úr fulltrúaráði, formenn félaga innan flokksins og fyrrverandi bæjarfulltrúar flokksins. Svo sterk er heimtaugin í Sjálfstæðisflokkinn að það sem helst virtist standa forystusauðunum fyrir þrifum við stofnun framboðsins, var hvort þau héldu bitlingum sínum innan flokksins, þá sérstaklega á landsfundarpartíinu.
Meira að segja þingmenn flokksins eru með það á hreinu að heimtaugin hafi bara skroppið af keflinu um stundarsakir, sbr. orð Ásmundar Friðrikssonar í Eyjafréttum:
�??Og þó að um stund sé slagsíða á bátnum þá er takmarkið að ná þeim aftur um borð sem hafa ákveðið að fá sér annað skipsrúm og nýtt föruneyti. Erfiðleikar eru til að sigrast á þeim en að lokum mun mótlætið styrkja okkur og við sameinast á ný undir merkjum Sjálfstæðisflokksins.�??
Sei nó mor, sei nó mor, fyrir mig, en hvað um þig? �?tlar þú að láta plata þig á laugardaginn?
Til H listans er stofnað vegna óánægju innan sjálfstæðisflokksins, sem tilkomin er vegna þess að á lýðræðið hallaði, einræði var komið á.
Að lokum ætla ég að summa þetta upp svona:
D og H listar standa fyrir lýðræðishalla, sundrungu, einræði, óánægju og klofning.
E listi stendur fyrir samvinnu og lýðræði, það er allt sem þarf, til að öllum bæjarbúum líði vel.
Settu X við E á laugardaginn ef þú vilt raunverulegar breytingar.
Guðlaugur Friðþórsson