Stelpurnar okkar í meistaraflokki kvenna leika í úrslitum Borgunarbikarsins á föstudaginn þegar liðið mætir Breiðabliki á Laugardalsvelli klukkan 19:15. �?etta gæti orðið spennandi leikur
og skiptir miklu að Eyjamenn fjölmenni á leikinn og styðji sínar konur. Eyjafréttir spjölluðu við Sóleyju Guðmundsdóttur, fyrirliða sem er spennt fyrir leiknum á morgun
Hvernig er tilfinningin fyrir þínum fyrsta bikarúrslitaleik í meistaraflokki? – Hún er frábær, þetta er leikurinn sem alla dreymir um að spila og það er ólýsanlegt að hafa loksins náð þessu markmiði.
Er mikil ábyrgð að vera fyrirliði í liði eins og þessu? – �?að er alltaf ábyrgð að vera fyrirliði og maður er alltaf að læra eitthvað nýtt en þetta er líka mjög gaman, sérstaklega þegar maður er með svona frábæra liðsfélaga.
Nú koma leikmenn liðsins frá löndum víðsvegar að úr heiminum, ná stelpurnar vel saman þrátt fyrir það? – Já, við náum allar ótrúlega vel saman. Við íslensku stelpurnar reynum að passa okkur á að tala eins mikla ensku og við getum og ég held að það hafi tekist nokkuð vel í sumar. Svo erum við mjög heppnar með útlendinga, þær eru allar mjög opnar og hressar og eiga mjög auðvelt með að aðlagast lífinu í Eyjum.
Tvær af ykkar stelpum eru farnar til Bandaríkjanna, önnur í nám og hin í skiptinám, á það eftir að trufla ykkur? – Sabrína og Díana Helga eru báðar frábærir leikmenn og mjög góðar í þessum hóp. Við eigum eftir að sakna þeirra gríðarlega og það er leiðinlegt að þær geta ekki upplifað þennan stóra leik með okkur en eins og alltaf þá kemur maður í manns stað. Við munum ekki láta þetta hafa áhrif á leikinn á föstudaginn.
Nú eruð þið komnar með nýja leikmenn koma þeir til með að styrkja hópinn? – Við höfum ekki enn fengið að sjá þær spila en af síðustu æfingum að dæma þá lofa þær góðu og eiga klárlega eftir að auka samkeppnina og breiddina í hópnum.
�?ið hafið bæði unnið Blika og tapað fyrir þeim á tímabilinu, verður þetta jafn leikur? – �?g held að þetta verði frekar jafn leikur. Bæði lið ætla sér auðvitað að vinna og það verða örugglega ekki teknir miklir sénsar. �?að mæta tvö lið á Laugardalsvöll sem ætla ekki að gefa neitt eftir og þetta verður barátta fram á síðustu mínútu.
Hvað skiptir mestu máli þegar það er komið að svona leik? – Að vera yfirvegaðar og spila okkar fótbolta. �?ó að þetta sé bikarúrslitaleikur þá er þetta bara fótbolti og við megum ekki ofhugsa leikinn heldur bara hafa gaman að þessu og gefa allt sem við eigum í þetta.