Sóley: Leikurinn sem alla dreymir um að spila

Við tókum Sóley Guðmundsdóttur, fyrirliða ÍBV, tali í vikunni og birtum í blaðinu okkar. Hér mun viðtalið birtast en Sóley er gríðarlega spennt fyrir leiknum og segir þetta vera leikinn sem alla dreymir um að spila. Stelpurnar okkar í meistaraflokki kvenna leika í úrslitum Borg- unarbikarsins á morgun þegar liðið mætir Breiðabliki á Laugardalsvelli klukkan […]

�?rýsta á um að réttindi barna til gjaldfrjálsrar grunnmenntunar verði virt

Barnaheill – Save the Children á Íslandi leita til almennings eftir undirskriftum til að þrýsta á um að réttindi barna til gjaldfrjálsrar grunnmenntunar verði virt. Samtökin hafa á síðastliðnu ári sent yfirvöldum tvær áskoranir. �?ll börn eiga rétt á grunnmenntun án endurgjalds samkvæmt 28. grein barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland hefur lögfest. Í 2. grein […]

Réðist á tvo menn vopnaður hamri

Karlmaður var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna líkamsárásar og innbrota í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Fjórir menn brutust inn í Íþróttamiðstöðina aðfaranótt miðvikudags í síðustu viku og tveimur nóttum síðar brutust þrír þeirra inn á þremur stöðum, í reykkofa, geymslu og bíl sem stóð við verkstæði í bænum. Eitthvað virðist þó hafa slest upp […]

Fréttatilkynning frá Knattspyrnuráði karla

Í vikunni gerði knattspyrnudeild karla ÍBV könnun varðandi áhuga á rútuferðum, annars vegar frá Eyjum á föstudag til að ná báðum leikjum og hins vegar á laugardag. Ferðin frá Eyjum á föstudag hlaut dræmar undirtektir og verður því aðeins hópferð frá Eyjum á laugardag. Miðasala í ferðina fer fram á skrifstofum ÍBV, og kostar 2000 […]

Leikurinn sem alla dreymir um að spila

Stelpurnar okkar í meistaraflokki kvenna leika í úrslitum Borgunarbikarsins á föstudaginn þegar liðið mætir Breiðabliki á Laugardalsvelli klukkan 19:15. �?etta gæti orðið spennandi leikur og skiptir miklu að Eyjamenn fjölmenni á leikinn og styðji sínar konur. Eyjafréttir spjölluðu við Sóleyju Guðmundsdóttur, fyrirliða sem er spennt fyrir leiknum á morgun Hvernig er tilfinningin fyrir þínum fyrsta […]

Eldur kom upp í Áshamri

Allt slökkvilið Vestmannaeyja, lögregla, sjúkrabíll, sjúkraliðar og læknir voru kallaðir út vegna elds í fjölbýlishúsinu að Áshamri 71. �?egar tíðindamaður kom á staðinn um líkt leiti og slökkviliðið var að mæta, voru allir íbúar í viðkomandi stigagangi komnir út. �?au voru misvel klædd, í stuttermabolum og í náttsloppum og sumir berfættir, en hvasst var og […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.