�?rýsta á um að réttindi barna til gjaldfrjálsrar grunnmenntunar verði virt
Barnaheill – Save the Children á Íslandi leita til almennings eftir undirskriftum til að þrýsta á um að réttindi barna til gjaldfrjálsrar grunnmenntunar verði virt. Samtökin hafa á síðastliðnu ári sent yfirvöldum tvær áskoranir.
�?ll börn eiga rétt á grunnmenntun án endurgjalds samkvæmt 28. grein barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland hefur lögfest. Í 2. grein er jafnframt kveðið á um að ekki megi mismuna börnum sökum stöðu þeirra eða foreldra þeirra, svo sem vegna efnahags.
Skólinn er hornsteinn jafnræðis í samfélaginu og þess vegna er afar mikilvægt að tryggja að börnum sé ekki mismunað.
Á liðnu ári hafa Barnaheill sent frá sér tvær áskoranir til ríkis og sveitarfélaga um að tryggja öllum börnum þennan rétt sinn. Samtökin hvöttu þingmenn til að beita sér fyrir lagabreytingum sem tækju af öll tvímæli um að gjaldtaka væri óheimil og hvöttu sveitarfélög til að setja skýrar reglur þar að lútandi:
1 Barnaheill hvetja þingheim til að gera breytingar á 31. gr. grunnskólalaga, þannig að tekið verði fyrir alla gjaldtöku á námsgögnum nemenda, þ.m.t. á ritföngum og pappír sem samtökin telja að verði að líta á sem námsgögn, því án þess geta nemendur ekki stundað nám sitt.
2 Barnaheill hvetja stjórnvöld, bæði ríki og sveitarfélög, að setja skýrar reglur um að óheimilt sé að krefja foreldra um innkaup á gögnum, greiðslu fyrir gögn sem nota á vegna skólagöngu barnanna eða fyrir aðra starfsemi á vegum skóla.
3 Barnaheill hvetja alla grunnskóla til að finna leiðir til að uppfylla markmið aðalnámskrár um menntun barnanna, án þess að krefja foreldra um greiðslu á hluta námsgagna eða starfsemi á vegum skóla.
Gjaldtaka felur í sér mismunun fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
UNDIRSKRIFTAS�?FNUN:
Nú leitum við til almennings eftir undirskriftum til að þrýsta á um að þessi réttindi barna verði virt að fullu og lögum breytt til að tryggja að svo verði.
Tökum höndum saman og stöndum vörð um réttindi íslenskra barna til náms án gjaldtöku! Krefjumst þess að innkaupalistar skóla verði aflagðir og að öll börn standi jafnt að vígi þegar kemur að grunnréttindum þeirra til menntunar.
Smellið hér til að skrifa undir áskorun.

Nýjustu fréttir

Áfram ÍBV
Varðskip danska sjóhersins í heimsókn í Eyjum
Ríkið gæti komið að Eyjagöngum með ábatagreiðslum
Samrýmdir og samhentir Betelbræður 
Íslendingur vann tæpar 65 milljónir í EuroJackpot
Hafsbotnsmælingar vegna Eyjaganga hefjast í næstu viku
Baldur snýr aftur í Breiðafjörð þegar Herjólfur verður kominn í lag
Kristrún ánægð með heimsókn til Vestmannaeyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.