Arngrímur Jóhannsson, flugstjóri lenti sjóflugvél sinni við Vestmannaeyjahöfn í dag. Arngrímur lenti vélinni reyndar ekki inni í höfninni eins og upphaflega var áætlað, enda var Herjólfur nýfarinn úr höfn og auk þess sem Arngrímur þekkti ekki nógu vel til aðstæðna. Hann sagði hins vegar í stuttu samtali við komuna að næst myndi hann líklega lenda inn í höfninni. Arngrímur lenti vélinni tvisvar við höfnina, fyrst við Klettsvík utan við hafnargarðana og svo utan við hafnarmynnið í seinna skiptið. Hann tók hins vegar á loft inn í höfninni stuttu eftir komuna og gekk flugtakið eins og í sögu hjá þessum reynda flugmanni.
Með fréttinni fylgir stutt myndband af flugtakinu nú síðdegis.