Loðnubátarnir streyma til Vestmannaeyja af miðunum fyrir norðaustan land. �?etta er löng sigling og erfið með Suðurströndinni eins og veðrið hefur verið undanfarnda daga. Stöðugar sunnan og suðvestanáttir og mikill sjór.
Sighvatur Bjarnason VE var að koma rétt í þessu með fullfermi og von er á Álsey VE núna á eftir og Kap VE seinna í kvöld. Huginn VE landaði tæpum 1300 tonnum af kolmunna um helgina og fer á loðnu á morgun.