Maður­inn sem er grunaður um al­var­lega lík­ams­árás og kyn­ferðis­brot gegn konu í Vestmannaeyjum var lát­inn laus úr haldi lög­reglu
Maður­inn sem er grunaður um al­var­lega lík­ams­árás og kyn­ferðis­brot gegn konu í Vest­manna­eyj­um var lát­inn laus úr haldi lög­reglu á miðvikudaginn. mbl.is greindi frá.
Gæslu­v­arðhald yfir mann­in­um rann út á miðvikudaginn. Lög­regl­an í Vest­manna­eyj­um fór fram á fram­leng­ingu gæslu­v­arðhalds en Héraðsdóm­ur Suður­lands féllst ekki á kröf­una.
Jó­hann­es �?lafs­son, yf­ir­lög­regluþjónn í Vest­manna­eyj­um, vildi ekk­ert tjá sig um rann­sókn máls­ins að svo stöddu.
Maður­inn var hand­tek­inn laug­ar­dag­inn 17. sept­em­ber, grunaður um að hafa brotið gegn konu á fimm­tugs­aldri um nótt­ina. Hún var flutt með sjúkra­flugi til Reykja­vík­ur um morg­un­inn eft­ir að hafa fund­ist nak­in með mikla áverka í and­liti við hlið fata sinna og leik­ur grun­ur á að brotið hafi verið gegn henni kyn­ferðis­lega. Lík­ams­hiti kon­unn­ar mæld­ist 35,3 gráður er hún fannst og sagði í áverka­vott­orði að hún hafi verið �??af­mynduð í fram­an�??.

Nýjustu fréttir

Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.