Mæta toppliðinu á útivelli
ibv-fhl-sgg
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Einn leikur fer fram í 14. umferð Lengjudeildar kvenna í dag, laugardag. Þar mætast liðin sem hafa verið á mesta skriðinu að undanförnu. Ef skoðaðir eru fimm síðustu leikir þessara tveggja liða kemur í ljós að þau eru með fullt hús stiga úr þeim.

Raunar er það svo að FHL hefur haft talsverða yfirburði í deildinni og aðeins tapað einum leik það sem af er móti. Eyjaliðið byrjaði mótið illa, en hefur komið sterkt inn í síðustu leikjum og vermir nú þriðja sætið, en fjögur lið eru jöfn að stigum í öðru til fimmta sæti.

Leikur dagsins fer fram í Fjarðabyggðarhöllinni og hefst hann klukkan 12.30.

Nýjustu fréttir

Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.