ÍBV tekur á mót Rauðu Stjörnunni í kvöld kl 18:30. Klukkutíma fyrir leik verður hægt að gæða sér á hamborgurum og gosi gegn vægu gjaldi, einnig verður selt inn í VIP sal þar sem léttar veitingar verða í boði fyrir leik sem og í hálfleik. Serbarnir sigruðu úti 2-0 og eru í ágætri stöðu. Leikmenn ÍBV eru þó ekki búnir að gefast upp og ætla að mæta ákveðnir til leiks. Strákarnir stóðu sig vel ytra og ljóst er að ef þeir spila eins á Hásteinsvelli, eiga þeir ágæta möguleika á því að komast áfram.