Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði eitt marka íslenska landsliðsins í knattspyrnu sem lagði það króatíska í undankeppni Heimsmeistaramótsins í dag. Þetta var 53. mark Margrétar með A-landsliðinu en hún hefur nú spilað 65 leiki með liðinu. Auk þess að skora nældi hún sér í guld spjald.