Margrét Lára Viðarsdóttir, markadrottning íslenska landsliðsins, lék í gær fyrsta knattspyrnuleik sinn síðan hún gekkst undir stóra aðgerð á læri snemma vetrar. Hún kom inn á sem varamaður í 1:1 jafntefli Kristianstad við Piteå í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar.