Með sam­ein­ingu verður til sterkt afl

Þing Sjó­manna­sam­bands Íslands í vik­unni var haldið í skugga viðræðna fimm af stærstu sjó­manna­fé­lög­um lands­ins um sam­ein­ingu í eitt stórt stétt­ar­fé­lag sjó­manna. Verði af slíkri sam­ein­ingu er úr­sögn þriggja fé­laga úr Sjó­manna­sam­band­inu ráðgerð, en í lög­um SSÍ seg­ir að sam­bandið sé heild­ar­sam­tök sjó­manna í land­inu. Þeir sem standa fyr­ir viðræðunum telja að með sam­ein­ingu verði til sterkt afl í viðræðum við út­gerðina og öðrum hags­muna­mál­um sjó­manna, mbl.is greindi frá.

Fé­lög­in sem eiga nú í viðræðum um sam­ein­ingu eru Sjó­manna­fé­lag Íslands, Sjó­manna- og vél­stjóra­fé­lag Grinda­vík­ur, Sjó­manna­fé­lag Eyja­fjarðar, Sjó­manna­fé­lag Hafn­ar­fjarðar og Sjó­manna­fé­lagið Jöt­unn í Vest­manna­eyj­um. Þegar greint var frá viðræðunum í viku­byrj­un var sagt að mögu­lega yrðu fé­lög­in enn fleiri. Sjó­manna­fé­lag Ólafs­fjarðar stend­ur utan þess­ara viðræðna, en síðan eru mörg blönduð fé­lög inn­an SSÍ með bæði sjó­menn og verka­fólk í landi inn­an sinna vé­banda.

Um viðræðurn­ar sagði m.a. svo á heimasíðu Sjó­manna­fé­lags Íslands í vik­unni: „Mark­mið sam­ein­ing­ar er að búa til stórt og öfl­ugt fé­lag til að standa að baki sjó­mönn­um þessa lands. Með þessu móti get­um við sam­einað krafta okk­ar og þannig skapað grund­völl til að setja gríðarlega inn­spýt­ingu í allt okk­ar starf, ekki síst þær kjara­samn­ingsviðræður sem fram und­an eru,“ en sjómenn verða samningslausir núna í desember.

Nýjustu fréttir

Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
Gugusar fimmti tónlistamaðurinn á Hljómey
Tónlistarsköpun fyrir ungmenni í Féló
Dramatískur sigur ÍBV á Haukum
Stórsigur ÍBV á Akureyri
Lengjubikarinn hófst í dag hjá ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.