Metallica tribute tónleikar á Háaloftinu

Fyrr á árinu voru haldnir tónleikar í Höllinni til heiðurs hljómsveitarinnar Nirvana, þar sem 31 ár var liðið síðan söngvari hljómsveitarinnar Kurt Cobain lést. Tónleikarnir heppnuðust ótrúlega vel og var stemningin æðisleg. Spilað var fullt af lögum af öllum þeim breiðskífum sem Nirvana gaf út á sínum tíma og voru áhorfendur mjög ánægðir með hvernig gekk, þar á meðal við þungarokkararnir á eyjunni. 

Þessir tónleikar veittu okkur mikinn innblástur til að fremja svipað verkefni seinna á árinu og er sú stund runnin upp. Eftir mikla skipulagningu og margar æfingar getum við loksins tilkynnt að þann 15. nóvember næstkomandi verða haldnir Metallica tribute tónleikar á Háaloftinu í Höllinni.

Spiluð verða lög af fyrstu 5 plötum hljómsveitarinnar og fram koma 9 hljóðfæraleikarar á þessum tónleikum sem munu skiptast á að spila á sviðinu til að heiðra þessa eðal hljómsveit. Þeir eru: Mikael Magnússon, Arnar Júlíusson, Trausti Mar Sigurðarson, Skæringur Óli Þórarinsson, Birgir Þór Bjarnason, Ásmundur Ívar Óskarsson, Óskar Elí Óskarsson, Jón Ævar Hólmgeirsson Austfjörð og Óliver Elí Gíslason.

Metallica er ein af þessum hljómsveitum sem flest allir í þungarokksheiminum geta rakið innblástur síns til. Hún er farsælasta þungarokkshljómsveit í heiminum, hefur spilað í öllum 7 heimsálfunum, selt milljónir eintaka af breiðskífum og gefið út 11 svoleiðis frá árunum 1983 til 2023. Ég fékk fyrst að heyra Metallica í tölvunni hans pabba þegar ég var 5 ára og var það lagið For Whom The Bell Tolls af plötunni Ride The Lightning. Ég verandi lítill risaeðlu- og vélmennaelskandi snáði fannst þetta vera grjótharðasta tónlist í heiminum og um leið og ég gat fór ég að æfa á trommur í Tónlistarskóla Vestmannaeyja með þeim tilgangi að tromma eins og meistari Lars Ulrich.

Félagarnir mínir í þessu verkefni hafa líka allir sínar eigin sögur um þeirra fyrstu kynni við Metallica og enda þær allar á “ÞETTA VAR ÓGEÐSLEGA TÖFF!!!”. Og hingað erum við komnir í dag, allir útrokkaðir og sveittir og tilbúnir að heiðra þessa merkismenn í þessari merkishljómsveit og hlakkar okkur innilega til að sjá sem flesta uppi á Háaloftinu í Höllinni þann 15. nóvember.

Aðsend grein.

Nýjustu fréttir

Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.